Nemandi á Netinu


Heiti námskeiðs
Nemandinn á Netinu


Braut / námsleið / kjörsvið
Upplýsingatækni og miðlun

Tegund námskeiðs (grunnnámskeið, skyldunámskeið, valnámskeið)

Misseri haust

Stærð námskeiðs í einingum 5 (10 ECTS)


Hámarksfjöldi nemenda

Forkröfur Engar (fyrsti áfanginn á kjörsviðinu?)

Námskeiðslýsing
Markmið: Nemendur þekki
Þekkingarmarkmið og skilningsmarkmið:
  • Þekki til rannsókna og tilraunaverkefni um Netið í námi og geti tengt nýja tækni kenningum um nám og kennslu
  • Þekki helstu verkfæri við nám og námssamfélög á Netinu
  • Þekki og geti lýst mismunandi gerðum netsamfélaga (námssamfélög,áhugasamfélög, leikjasamfélög)
  • Þekki lög og reglur um birtingu og meðferð efnis á Neti, höfundarréttarlög og opnar lausnir
  • Þekki og skilji samspil efnis á Netinu (rss, tagging) og þekki helstu upplýsingabanka með stafrænu margmiðlunarefni
  • Þekki og skilji hvaða hindranir eru á aðgengi ákveðinna hópa á upplýsingasamfélaginu


Færnimarkmið
  • Geti byggt námsferli á Netinu og tekið þátt í ýmis konar námssamfélögum á Netinu
  • Geti útbúið ýmis konar náms- og kennsluverkefni fyrir Netið
  • Geti tekið þátt í samvinnuverkefnum á Netinu (wiki)
>
Inntak / viðfangsefni
Inntak námskeiðsins er nám á Netinu og þekkingarleit og þekkingarsköpun nemenda í samvinnu við aðra í samtengdum og síkvikum stafrænum heimi. Á námskeiðinu verða skoðuð, prófuð og metin ýmis konar verkfæri og netþjónustur sem nýtast við netnám og námssamfélög á Neti.

Vinnulag
Námskeiðið er nemendamiðað og verkefnamiðað. Verkefni nemenda eru bæði einstaklingsverkefni og verkefni unnin í samvinnu við aðra með því að nota ýmis konar netverkfæri til samvinnuskrifa. Námumhverfið er að miklu leyti á Netinu og að hluta með fjarkennslusniði en einnig er gert ráð fyrir fyrirlestrum og verkstæðistímum
Námsmat
Námsmat verður með fjölbreyttum hætti, að hluta til með netprófum/heimaprófum, skilamöppu á vef og þátttöku í hópverkefnum á vef.

Lesefni [Ef hægt er.]

Útdráttur námskeiðslýsingar á ensku.